Gisting
Gistiaðstaða í Saurbæ
Við bjóðum upp á gistingu hér í Saurbæ. Tilvalið fyrir þá sem eru á
ferðinni eða vilja staldra við hjá okkur í fleiri en einn dag og fá tíma
í reiðkennslu, skoða hross eða bara hvað sem er. Við bjóðum oft upp á
sérstök tilboð fyrir þá sem eru í hrossa hugleiðingum.
Við erum með íbúð
sem er u.þ.b. 45 fermetrar að stærð með sér inngangi og baðherbergi.
Eitt rúmt svefnherbergi með tvíbreiðu rúmmi, ásamt svefnsófa í stofunni.
Allar nánari upplýsingar um verð og framboð, finnur þú á bókunarsíðunni.
Þér er líka velkomið að hafa samband við Heiðrúnu um nánari upplýsingar, heidrun@saurbaer.is eða í síma 849 5654.
