Um okkur
-
Saurbær
Saurbær er staðsettur í hjarta Skagafjarðar við ána Svartá. Í Saurbæ búa Heiðrún Ósk Eymundsdóttir og Pétur Örn Sveinsson, ásamt dóttur sinni Árdísi Heklu. Heiðrún og Pétur tóku við og keyptu Saurbæ árið 2014 af föður Heiðrúnar, Eymundi Þórarinssyni. Heiðrún er uppalin á bænum og hefur sama fjölskyldan búið þar síðan um aldamótin 1900. Heiðrún er því fimmti ættliður fjölskyldunnar sem tekur við búinu, en jafnframt fyrsta konan. Í Saurbæ eru skemmtilegar reiðleiðir auk þess sem hið fornfræga mótssvæði Vindheimamelar er handan við ána u.þ.b. í 1 km fjarlægð. Í Saurbæ er stunduð hrossarækt ásamt lítilli naugriparækt. Einnig er þar að finna nokkrar kindur, hundana Pílu og Lýru og kettina Snotru og Rósu.
Saurbær liggur u.þ.b. 5 km frá þjóðvegi 1. Beygt er af þjóðvegi 1 við Varmahlíð, inn á veg 752 og keyrt u.þ.b. 5 km, þá er beygt til vinstri en þar er skilti sem merkt er Saurbær. Síðan er keyrt niður brekku og þar blasir bærinn við á vinstri hönd. Einnig er hægt að koma svokallaðan Vindheimaveg (vegur 753).
-
Heiðrún Ósk
Heiðrún Ósk er uppalin í Saurbæ og hefur verið í hestamennsku frá því hún man eftir sér. Hún byrjaði að keppa 9 ára gömul og varð Íslandsmeistari í fimi í barnaflokki árið 1997 á hryssunni sinni Perlu frá Stóru-Gröf syðri. Heiðrún Ósk hefur tvisvar sinnum unnið ungmennaflokk á Landsmóti hestamanna, árið 2002 og 2004. Árið 2002 varð hún einnig Íslandsmeistari í fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum ásamt því að vera í öðru sæti í tölti. Allt þetta vann hún á gæðingnum Golu frá Yzta-Gerði. Sumarið 2003 fór Heiðrún til Þýskalands og vann hjá Rúnu Einarsdóttur og Karly Zingsheim á búgarði þeirra Gestüt Forstwald. Gola fyljaðist ekki árið 2003 og því tóku þær stöllur aftur þátt á Landsmóti 2004, þar sem þær vörðu titil sinn. Heiðrúnu var þá einnig veitt Reiðmennsku verðlaun FT fyrir góða og fagmannlega reiðmennsku. Heiðrún Ósk útskrifaðist frá Háskólanum á Hólum sem hestafræðingur og leiðbeinandi árið 2006 og hlaut þá einnig hina eftirsóttu Morgunblaðsskeifu, fyrir bestan árangur í reiðmennsku. Sumarið 2006 vann hún á Þingeyrum hjá Helgu Thoroddsen og Gunnari Ríkharðssyni. Heiðrún Ósk var í verknámi á Hvoli í Ölfusi hjá Ólafi H. Einarssyni og Þorvaldi Árna Þorvaldsyni. Heiðrún útskrifaðist sem tamningamaður og þjálfari árið 2007 og hlaut þá tamningabikarinn fyrir bestan árangur á tamningaprófi, en hún hlaut vel yfir 9 í aðaleinkunn. Heiðrún útskrifaðist sem þjálfari og reiðkennari C frá Hólum árið 2010. Heiðrún var búsett í Noregi á árunum 2011-2013 og þjálfaði þar hross fyrir kynbótasýningar og keppni hjá Inge Kringeland. Um vorið árið 2012 sýndi hún, í Seljord í Noregi, m.a. stóðhestinn Sævar frá Hæli í 9,0 fyrir tölt, brokk, stökk, vilja/geðslag og fegurð í reið, eða samtals 5x 9 fyrir hæfileika. Heiðrún hefur verið ötul í keppni og kynbótasýningum undan farin ár, ásamt að sinna reiðkennslu og almennum bústörfum heima í Saurbæ. -
Pétur Örn
Pétur Örn er frá Hofsósi og byrjaði að ríða út og sniglast í kringum hesta þegar hann var smá gutti. Pétur hefur unnið hjá mörgum þekktum tamninga og hestamönnum m.a. hjá Auðunni Kristjánssyni, Tómasi Ragnarssyni, Hinriki Bragasyni og Huldu Gústafsdóttur, Tryggva Björnssyni, Guðmundi Björgvinssyni og Evu Dyrøy. Einnig hefur hann unnið á hrossaræktarbúinu Hvoli í Ölfusi og hjá Miðsitjuhestum (Sólveigu Stefánsdóttur og Jóhanni Þorsteinssyni). Pétur var í verknámi frá Hólaskóla á Hafsteinsstöðum, hjá þeim Skapta Steinbjörnssyni og Hildi Claessen. Því er óhætt að segja að Pétur sé búinn að viða að sér mikilli reynslu í tamningu, þjálfun og sýningum á hestum. Pétur Örn útskrifaðist sem hestafræðingur og leiðbeinandi árið 2004, tamningamaður árið 2005 og þjálfari og reiðkennari C árið 2009. Pétur hefur talsverða reynslu af því að sýna hross í kynbótadómi og sýndi m.a. hryssuna sína Venusi frá Sjávarborg í 1. verðlaun árið 2008, þar af 9,5 fyrir skeið. Pétur Örn var í úrslitum í A-flokki gæðinga á Fjórðungsmóti Vesturlands 2009 á hestagullinu Þóru frá Prestsbæ. Pétur var búsettur og starfaði í Noregi í tvö og hálft ár hjá Inge Kringeland. Pétur hefur sýnt töluvert af hrossum í Noregi og árið 2012 sýndi hann fjögur af tíu hæst dæmdu hrossunum, sýndum í Noregi, þar af 3 stóðhesta 8,21-8,25 í aðaleinkunn og hryssuna Þilju frá Prestsbæ (8,17). Pétur sýndi stóðhestinn okkar, Hlekk frá Saurbæ, í 8,71 fyrir hæfileika árið 2016, 8,48 í aðaleinkunn. Þeir komust einnig á Landsmót hestamanna á Hólum 2016, í gegnum úrtöku, í A-flokki, á Hólum með einkunnina 8,53. Pétur starfar nú (2016-) sem reiðkennari við Hólaskóla og er umsjónarkennari frumtamninga.