Söluhross

Í Saurbæ er alltaf eitthvað af hrossum til sölu. Hér eru einnig falleg og vel ættuð folöld og trippi til sölu. Ef það er eitthvað sérstakt sem þú ert að leita að, skaltu hafa samband og við skoðum hvort við séum með hestinn fyrir þig eða getum hjálpað þér við að finna hann.

 


Hafið samband við Heiðrúnu eða Pétur.

  • Rammi frá Saurbæ - SELDUR

    Rammi frá Saurbæ IS2016157781 er sjö vetra geldingur, 140 cm á hæð á herðar. Hann er rólegur og öruggur með meðal vilja. Hann er efnilegur alhliða hestur eða bara sem lúxus reiðhestur. Hann er einfaldur hestur sem á auðvelt með að tölta og er auðveldur og meðfærilegur í allri umgengni.

    Endilega hafið samband fyrir nánari upplýsingar og myndband.

    Read more

  • Harmónía frá Saurbæ

    Harmónía IS2015257785 er sjarmerandi klárhryssa með góðar gangtegundir, fallegar hreifingar og mikinn prúðleika. 

    Hún er viljug og næm, en samt traust og hlýðin með léttar hreifingar. Hún er létt á taumin, jákvæð og dugleg og alltaf að bæta sig. Hún er vel tamin og þjálfuð með góðan grunn í fimiæfingum.

    Harmónía er undan Hendingu frá Saurbæ sem er fyrstu verðlauna klárhryssa og Vilmundi frá Feti sem hefur hlotið heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Hún er fædd 2015 og er 138 cm á herðar.

    Endilega hafið samband fyrir nánari upplýsingar. Mynband aðgengilegt á instragram síðu saurbaer.is 

    Read more

  • Náttsól sjarmerandi hryssa SELD

    Náttsól sjarmerandi hryssa SELD

    Náttsól frá Saurbæ IS2010257781,  myndarleg og sjarmerandi hryssa. 

    Náttsól er traust og mikið tamin hryssa. Hún er fremur stór og myndarleg, mjúk á tölti með prýðisgott brokk, stökk og fet. Frábær reiðhryssa, sem hentar jafnt á námskeið, í hestaferðina eða léttar keppnir. Hún kann hinar ýmsu fimiæfingar og hefur farið í 5,60 í V5 léttum fjórgangi. Náttsól er undan Gustsdótturinni Ljónslöpp frá Bringu og 1. verðlauna hestinum Víg frá Eikarbrekku, en hann var í 3 sæti í slaktaumatölti T2 á heimsmeistaramótinu í Berlín 2013.

    Myndbandið er frá því í okt 2018. SJÁ MYNDBAND

    Náttsól

    Náttsól brokk

    Náttsól uppstilling

    Read more

  • Bratti mjúkur töltari -Seldur

    Bratti mjúkur töltari -Seldur

    Bratti t

    Bratti frá Saurbæ IS2010157782 er mjúkur hestur sem velur helst tölt. Bratti er með frábært ganglag fyrir hinn almenna reiðmann sem langar að eiga mjúkan reiðhest sem fer fallega og auðvelt er að ríða tölt. Bratti er alhliða hestur með mjúkt tölt, brokki er skrefgott og mjúkt, það er auðvelt að setja hann upp í stökk og hann stekkur rólega. Bratti er með meðal vilja, fer akkurat á þeirri ferð sem knapinn biður um en hvorki hraðar né hægar og er þannig mjög þægilegur reiðhestur. Bratti býr yfir skeiði en það hefur lítið sem ekkert verið átt við það. Bratti er traustur, hlýðinn og taumléttur hestur. Bratti er næmur fyrir ábendingum og hentar best fólki með einhverja reynslu eða vönu fólki. Bratti kann vel að víkja undan fæti og hægt að ríða honum inn í krossgang og sniðgang og gæti hann einnig hentað vel á námskeið. Bratti mundi líka sóma sér vel í hestaferð og gæti e.t.v. hentað í töltkeppni eins og T8 eða T4.

    Bratti er undan Roða frá Múla sem hlotið hefur 1. verðlaun fyrir afkvæmi og Birtingu frá Árgerði.

    Hægt er að sjá myndband af Bratta með þvi að ýta HÉR

    Read more

  • Ljúfa, vel ættuð ræktunarhryssa SELD

    Ljúfa, vel ættuð ræktunarhryssa SELD

    Ljúfa frá Hvoli IS2006282013, blup 112. Ljúfa er undan Þóroddi frá Þóroddstöðum og 1. verðlauna klárhryssu, Ljósbrá frá Hveragerði en hún var á Landsmóti 2002. Fyrverandi eigendur eru hættir í hestum og því er hryssan til sölu. Endilega hafið samband fyrir allar nánari upplýsingar og spurningar, heidrun(hja)saurbaer.is eða í síma 849 5654 . Á einnig til vídeó af hryssuni á fjórða vetur.

    • Ljúfa

      Ljúfa

    • Ljúfa

      Ljúfa

     

    Read more

Print Email