ÍslenskaEnglish
Hrossarækt Senda tengil

Í Saurbæ hafa verið hross frá fornu fari. Hér áður fyrr voru ræktuð hross sem nýttust ábúendum við dagleg störf á bænum og fólk hafði umfram allt gaman af samvistum við. Markviss hrossarækt hefur hinsvegar verið stunduð frá árinu 2001, þá var farið að rækta hross með tilliti til ræktunar kynbótahrossa og farið var að vanda val stóðhesta undir bestu hryssurnar á bænum.  Árið 2001 var kúabúskapur lagður af og í framhaldi af þvi fest kaup á fyrstu veðlauna hryssunni Golu frá Yzta-Gerði og skömmu síðar  gæðingnum Krafti frá Bringu. Í dag eru átta hryssur í ræktun, þar af fjórar hryssur með fyrstu verðlaun og eru tvær þeirra frá Saurbæ. Ræktnarmarkmiðið er að rækta geðgóð, falleg og fjölhæf hross sem sýna afköst á gangi eða með öðrum orðum, hross sem gaman er að.