| Pétur í Noregi |
|
|
Pétur er búinn að starfa í Noregi, núna í nærri því þrjá mánuði, hjá Inge Kringeland. Pétur sýndi tvo góða stóðhesta í Strömsholm í Svíþjóð í lok maí. Öggur frá Kringeland, 5v, undan Spuna frá Miðsitju og Veröld frá Blönduósi, fékk 8,20 í aðaleinkunn og bróðir hans Náttfari frá Kringeland, 6v, undan Illingi frá Tóftum, hann fékk þá skemmtilegu einkunn 7,99. Pétur er núna að fara að sýna fleiri hross frá Kringeland, um helgina 17-19 júní í Tresfjord í vestur Noregi.
Hér situr Pétur glæsistóðhestinn Ögg frá Kringeland. |











